|
Í bókaverslun IÐNÚ, Brautarholti 8 í Reykjavík, er sérstök kortadeild í rúmgóðu húsnæði þar sem hægt er að skoða og velja milli allra þeirra fjölmörgu korta sem í boði eru hjá Ferðakortum. Þar má fá öll ný kort fyrirtækisins og einnig eldri kort frá Landmælingum Íslands, hvort sem er flöt eða brotin. Verslunin er opin mánudaga - fimmtudaga frá kl. 9-17 og föstudaga frá kl. 9-16. Verið velkomin. |
|
|
Ferðakort 1:250 000 - Landshlutar |
|
   
Ný ferðakort 1:250 000 sem sýna allt Ísland á fjórum kortum með mikilli skörun. Kortin, sem eru með hæðarskyggingu og 50 metra hæðarlínum, hafa að geyma nýjustu upplýsingar fyrir ferðafólk, m.a. um vegi og ferðaþjónustu. Ferðakortin eru í þægilegu broti sem hentar sérlega vel á ferðalögum.
Ný prentun 2008.
Lesa meira...
|
|
|
Veggkort Ísland 1:250 000, 1:350 000 og 1:500 000 |
|

Ferðakort hafa til sölu glæsileg Íslandskort í ýmsum stærðum og gerðum. Um er að ræða stærri veggkort í mælikvarðanum 1:250 000, 1:350 000 og 1:500 000. Kortin eru til í ýmsum útfærslum: á pappír, plöstuð, á segulplötu í álramma, á foam-plötu í álramma eða á álplötu og eru til sölu í IÐNÚ bókabúð
Lesa meira... |
|
|
Ferðakort 1:500 000 - Ísland |
|
 Ferðakort 1:500 000 er vinsælasta og mest selda ferðakort af Íslandi síðastliðinn aldarfjórðung, en það hefur verið endurskoðað og uppfært reglulega í gegnum tíðina. Kortið sýnir allt landið á einu blaði (78 x 110 cm) og er þar að finna helstu upplýsingar sem ferðamenn þurfa á að halda, meðal annars upplýsingar um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer. Ferðakortið er í hentugu broti og fylgir því örnefnaskrá með yfir 3000 örnefnum.
Ný prentun 2010.
Lesa meira... |
|
|
 Ferðakort gefa út tvær vandaðar kortabækur. Vegaatlas í mælikvarða 1:200 000 er skemmtileg og fróðleg útgáfa í stórri gormabók, sem er samanbrotin í handhægri öskju. Ferðakortabók er í litlu hentugu broti, en hún hefur að geyma ferðakort í mælikvarða 1:500 000 og fjölda gagnlegra þemakorta. Frábærir ferðafélagar.
Lesa meira... |
|
|
 Sérkortin sýna þekkta og vinsæla ferðamannastaði á Íslandi og gefa góðar upplýsingar m.a. um landslag, áhugaverðustu staði og göngu- og reiðleiðir. Þekktustu kortin í þessum flokki eru: Hornstrandir, Húsavík-Mývatn, Skaftafell, Vestmannaeyjar, Þórsmörk-Landmannalaugar og Suðvesturland. Nýjasta kortið í þessum flokki er útivistarkortið Golden Circle: Gullfoss - Geysir - Þingvellir.
Lesa meira... |
|
|
IÐNÚ bókabúð hefur nú til sölu mikið úrval korta frá Maps international í Bretlandi. Um er að ræða heimskort en einnig kort af einstökum heimsálfum. Þau eru af ýmsum stærðum og gerðum, m.a. svokölluð „political maps“ og „physical maps“ með þjóðfánum.
Lesa meira... |
|
|
Flest þeirra korta sem verið hafa á markaði á liðnum árum og út komu á síðustu öld á vegum Geodætisk Institut í Danmörku og Landmælinga Íslands, eru nú fáanleg á þremur geisladiskum. Diskarnir hafa notið mikilla vinsælda, enda gefst hér einstakt tækifæri til að fá stórt kortasafn í tölvuna. Kortadiskarnir eru gerðir fyrir PC tölvur, og með því að hlaða efni þeirra inn á tölvu má auðveldlega skipta milli kortategunda og ólíkra mælikvarða.
Lesa meira... |
|
|