|
Vegaatlasinn er byggður á kortagrunni í mælikvarðanum 1:250 000. Auk venjulegra korta á 50 blaðsíðum eru í atlasinum ýmis þemakort, s.s. um gististaði, tjaldsvæði, söfn, sundlaugar og golfvelli. Þá er í bókinni ítarleg nafnaskrá með yfir 15.500 örnefnum. Sérstaða bókarinnar felst meðal annars í skemmtilegu formi hennar, en samanbrotin er hún aðeins 16 x 31 cm og því handhæg í bílinn. Þegar Vegaatlasinn hefur verið opnaður koma kostir brotsins í ljós því þá er hægt að skoða opnu sem er um 60 cm breið og gefur það mjög góða yfirsýn yfir stórt landsvæði. Síðan má skoða eina blaðsíðu í senn eða brjóta bókina saman í upphaflega formið og er notandinn þá kominn með 16 cm breiða kortasíðu. Með því að stækka kortin úr 1:250 000 í 1:200 000 hafa þau orðið enn læsilegri og því ættu ferðamenn að eiga auðvelt með að átta sig á staðháttum, en við hönnun bókarinnar var reynt að taka mið af ferðavenjum Íslendinga. Vegaatlasinn er í vandaðri öskju.
Útgáfuár: 2007
Bókarstærð: 31 x 16 cm, síðufjöldi: 82
Tungumál: íslenska, enska, þýska og franska
Verð í IÐNÚ bókabúð: kr. 3.530
|
|
|
Í bókinni er vandað ferðakort í mælikvarða 1:500 000 með hæðarskyggingu og yfir 3000 örnefnum í nafnaskrá. Nýjustu upplýsingar eru um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer, auk mikilvægra upplýsinga um ferðaþjónustu, svo sem bensínafgreiðslur, gististaði, sundlaugar, söfn, golfvelli og fleira. Sérkort af nokkrum þekktustu ferðamannastöðum landsins eru í bókinni, þar á meðal eru Mývatn, Skaftafell, Landmannalaugar, Vestmannaeyjar og Þingvellir. Þá eru einnig götukort af Reykjavík, Akureyri og Seyðisfirði. Fjöldi þemakorta hafa að geyma upplýsingar sem gagn er af á ferðalögum. Þar má nefna: friðlýst landsvæði, þjóðminjakort, sveitarfélög á Íslandi, veðurskeytastöðvar og veðurspásvæði, gróður- og jarðfræðikort, útbreiðslusvæði GSM og NMT síma, útbreiðslusvæði FM útvarps og hringsjár.
Útgáfuár: 2008
Bókarstærð: 21,5 x 11,5 cm, síðufjöldi: 96
Tungumál: íslenska, enska, þýska og franska
Verð í IÐNÚ bókabúð: kr. 2.230
|
|
|