|
|
Ferðakort - Landshlutar
Ferðakort 1:250 000 - Nákvæmari ferðakort
Vönduð ný ferðakort með hæðarskyggingu og 50 metra hæðarlínubili, unnin eftir nýjum stafrænum kortagögnum. Ferðakortin í þessum mælikvarða eru þrjú og er mikil skörun á milli þeirra. Kortin eru með nýjustu upplýsingum um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer, auk mikilvægra upplýsinga um ferðaþjónustu. Á kortunum eru yfir 15.000 örnefni og er hægt að fá nafnaskrá fyrir kortaflokkinn í heild í sérstöku hefti. Brot kortanna er afar hentugt sem gerir þau sérlega þægileg á ferðalögum.
|
|
Ferðakort 1 - 1:250 000 - Vestfirðir og Norðurland |
|
Vandað landshlutakort sem sýnir norðvesturhluta landsins, Snæfellsnes, Vestfirði og Norðurland austur fyrir Húsavík. Kortið er með hæðarskyggingu og 50 metra hæðarlínubili auk nýjustu upplýsinga um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer. Þá eru mikilvægar upplýsingar um ferðaþjónustu svo sem um bensínafgreiðslur, gististaði og sundlaugar, söfn, friðlýstar minjar, golfvelli, áningarstaði, hringsjár og bátsferðir.
Útgáfuár: 2008
Blaðstærð: 86 x 138 cm
Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska
Verð í IÐNÚ bókabúð: kr. 2.190
|
|
Ferðakort 2 - 1:250 000 - Vesturland og Suðurland |
|
Vandað landshlutakort sem sýnir meðal annars Snæfellsnes, suðvesturhorn landsins, allt Suðurland austur fyrir Skaftafell og jafnframt landið norður fyrir jökla. Kortið er með hæðarskyggingu og 50 metra hæðarlínubili auk nýjustu upplýsinga um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer. Þá eru mikilvægar upplýsingar um ferðaþjónustu svo sem bensínafgreiðslur, gististaði og sundlaugar, söfn, friðlýstar minjar, golfvelli, áningarstaði, hringsjár og bátsferðir.
Útgáfuár: 2008
Blaðstærð: 86 x 138 cm
Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska
Verð í IÐNÚ bókabúð: kr. 2.190
|
|
Ferðakort 3 - 1:250 000 - Norðaustur- og Austurland |
|
Vandað landshlutakort sem sýnir austurhluta landsins. Kortið sýnir nær allan Vatnajökul og hálendið norðan hans, Austfirði og norðausturhorn landsins að Skjálfandaflóa. Kortið er með hæðarskyggingu og 50 metra hæðarlínubili auk nýjustu upplýsinga um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer. Þá eru mikilvægar upplýsingar um ferðaþjónustu svo sem bensínafgreiðslur, gististaði og sundlaugar, söfn, friðlýstar minjar, golfvelli, áningarstaði, hringsjár og bátsferðir.
Útgáfuár: 2008
Blaðstærð: 86 x 138 cm
Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska
Verð í IÐNÚ bókabúð: kr. 2.190
|
|
Ferðakort 4 - 1:250 000 - Hálendið |
|
Vandað landshlutakort sem sýnir hálendi Íslands. Kortið sýnir Vatnajökul og hálendið norðan hans og vestan, allt til Borgarfjarðar, og hluta Austfjarða. Kortið er með hæðarskyggingu og 50 metra hæðarlínubili auk nýjustu upplýsinga um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer. Þá eru mikilvægar upplýsingar um ferðaþjónustu svo sem bensínafgreiðslur, gististaði og sundlaugar, söfn, friðlýstar minjar, golfvelli, áningarstaði, hringsjár og bátsferðir.
Útgáfuár: 2008
Blaðstærð: 86 x 138 cm
Tungumál: Íslenska, enska, þýska og franska
Verð í IÐNÚ bókabúð: kr. 2.190
|
|
|
Um Ferðakort
- Ferðakort er nýtt vörumerki sem byggir á traustum grunni í kortagerð og kortaútgáfu.
Lesa meira...
Krækjur

|