|
Júní 2007
Ferðakort hafa sent frá sér nýja prentun af nokkrum vinsælustu kortunum sem áður komu út hjá Landmælingum Íslands. Kortin koma nú út með nýjum kápum í plastvasa og merki fyrirtækisins. Um er að ræða öll þrjú ferðakortin í mælikvarða 1:250 000 sem saman þekja allt landið með mikilli skörun milli kortblaða, en þessi kort hafa vakið mikla athygli vegna þess hve þægileg þau eru á ferðalögum. Hið sívinsæla heildarkort af Íslandi, Ferðakort 1:500 000, kemur nú í nýrri prentun, sama er að segja um sérkort Þórsmörk-Landmannalaugar og útivistarkort af Suðvesturlandi. Þá er komin ný prentun af Vegaatlas í mælikvarða 1:200 000, sem er eins og margir þekkja sérlega handhæg gormabók í bílinn. Vegaatlasinn er nákvæmasta vegakortið sem gefið er út í dag. Kortin fást í helstu bókaverslunum og á sölustöðum korta um allt land, en sérverslun með kort Ferðakorta er í IÐNÚ bókabúð, Brautarholti 8, Reykjavík.
|