topleft
topright
Ferðakortabók ný útgáfa PDF Print Senda

Júní 2008

Ferðakort hafa gefið út Ferðakortabók í nýrri útgáfu. Í henni er vandað ferðakort í mælikvarða 1:500 000 með hæðarskyggingu og yfir 3000 örnefnum í nafnaskrá. Nýjustu upplýsingar eru um vegi landsins, vegalengdir og veganúmer, auk mikilvægra upplýsinga um ferðaþjónustu, svo sem bensínafgreiðslur, gististaði, sundlaugar, söfn, golfvelli og fleira. Sérkort af nokkrum þekktustu ferðamannastöðum landsins eru í bókinni, þar á meðal eru Mývatn, Skaftafell, Landmannalaugar, Vestmannaeyjar og Þingvellir. Þá eru einnig götukort af Reykjavík, Akureyri og Seyðisfirði. Fjöldi þemakorta hafa að geyma upplýsingar sem gagn er af á ferðalögum. Þar má nefna: friðlýst landsvæði, þjóðminjakort, sveitarfélög á Íslandi, veðurskeytastöðvar og veðurspásvæði, gróður- og jarðfræðikort, útbreiðslusvæði GSM og NMT síma, útbreiðslusvæði FM útvarps og hringsjár.

 

 

Um Ferðakort

  • Ferðakort er nýtt vörumerki sem byggir á traustum grunni í kortagerð og kortaútgáfu.
    Lesa meira...

Ferðakort ▪ Brautarholti 8 ▪ 105 Reykjavík ▪ Sími 517-7210 ▪ Fax 562 3497 ▪ ferdakort(hjá)ferdakort.is ▪ www.ferdakort.is

Ráðgjöf.net - Vefhönnun
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates